Forsíða
61.223 greinar á íslensku.
Náhvalur
Náhvalur (fræðiheiti: Monodon monoceros) er tegund tannhvala og er önnur af tveimur tegundum í hvíthvalaætt (Monodontidae). Hin er mjaldur (Delphinapterus leucas). Latneska fræðiheitið þýðir: „hvalurinn með eina tönn og eitt horn“.
Sérkenni náhvalsins er skögultönn sem vex fram úr höfðinu á fullvöxnum törfum. Tönnin verður allt að 2,7 metrar á lengd, hún vex vinstra megin fram úr efri gómi og snýst í spíral til vinstri. Það er með öllu óljóst hvaða hlutverki tönnin gegnir en sennilegt virðist að hún tengist samkeppni milli tarfa.
Náhvalurinn er fremur lítill hvalur, 4,2 til 4,7 metrar á lengd og um 1000 kg. Við fæðingu eru kálfarnir gráir eða dökkbrúnir en við tveggja ára aldur myndast ljósir flekkir á skrokknum, þeir aukast eftir því sem dýrið eldist þannig að fullorðin dýr eru dröfnótt, dökk á baki og að mestu ljós á kviði. Nafn hvalsins á íslensku og öðrum norrænum málum er talið vera dregið af líkindum dröfnóttrar húðarinnar við sjórekið lík. Náhvalurinn hefur ekkert trýni og ennið nær aðeins fram fyrir munninn. Hvalurinn hefur ekkert horn á baki, bægslin eru fremur stutt og á fullorðnum dýrum sveigjast þau upp við endana. Sporðurinn er sérkennilegur í laginu, fremri brún sporðblökunnar er bein en aftari jaðar hvors sporðhelmings sveigist frá miðju að hliðarjaðri.
Vissir þú...

- … að kvikmyndin Frægðarbrautin (sjá mynd) frá 1957 var ekki sýnd í Frakklandi fyrr en árið 1975 vegna þess hve hún sýndi franska herinn í neikvæðu ljósi?
- … að ýmsir evrópskir fræðimenn ferðuðust til Mið-Austurlanda til að kynna sér nýjungar í stærðfræði og læknisfræði á tíma gullaldar íslams frá 8. öld til 13. aldar?
- … að austurlenskir drekar eru sagðir geta stjórnað vatni og rigningu og hafa þess vegna verið tilbeðnir til þess að bjarga uppskeru frá þurrki?
- … að Samveldisleikarnir voru fyrsta alþjóðlega fjölíþróttamótið með jafn mörg verðlaun fyrir karla og konur?
- … að viðartittlingur sást í fyrsta skipti á Íslandi í júlí 2026 og hafði þá aðeins einu sinni sést í Evrópu, á Skáni um áratug fyrr?
Fréttir

- 12. ágúst: Almyrkvi á sólu (sjá mynd) gengur yfir Ísland, Grænland og Spán.
- 21. júlí: Daniel Ortega, meðforseti Níkaragva, lýsir því yfir að kosningar verði framvegis ekki haldnar í landinu.
- 20. júlí: Andy Burnham tekur við sem forsætisráðherra Bretlands.
- 19. júlí: Spánn vinnur heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Don Nelson (9. ágúst) • Gunnar Þórðarson (29. júlí) • Glen Hansard (29. júlí) • Kevin Keegan (20. júlí)
17. ágúst
- 1998 - Fjármálakreppan í Rússlandi 1998 hófst.
- 1999 - Jarðskjálfti reið yfir héraðið İzmit í Tyrklandi með þeim afleiðingum að yfir 17.000 fórust.
- 2006 - Danska fríblaðið 24timer hóf göngu sína.
- 2010 - Bandaríkin og Suður-Kórea hófu heræfinguna Ulchi Freedom Guardian.
- 2013 - Harðangursbrúin í Noregi var opnuð fyrir umferð.
- 2015 - 20 létust og 124 særðust þegar sprengja sprakk í Erawan-helgidómnum í Bangkok í Taílandi.
- 2017 - Hryðjuverkaárásirnar í Katalóníu 2017: Maður ók sendiferðabíl inn í mannfjölda á Römblunni í Barselóna með þeim afleiðingum að 13 létust.
- 2022 - Tyrkland og Ísrael tóku aftur upp stjórnmálasamband.
Systurverkefni
|
|
