1500
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1500 (MD í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 24 manna dómur nefndur á Alþingi til að skera úr um erfðadeilu sem nefnd var Möðruvallamál.
- Benedikt Hersten hirðstjóri lét dæma um verslun og fiskveiðar Englendinga á Íslandi.
- Hallsteinn Þorsteinsson og Sesselja Þorsteinsdóttir á Víðivöllum gáfu jörðina Skriðu í Fljótsdal til klausturhalds.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 5. febrúar - Ítalíustríðin - Hertoginn Ludovico Sforza endurheimti Mílanó eftir að hafa verið hrakinn þaðan mánuði áður.
- 17. febrúar - Orrustan við Hemmingstedt - Danska hernum mistókst að leggja undir sig bændalýðveldið Þéttmerski.
- 22. apríl - Portúgalinn Pedro Álvares Cabral gekk á land í Brasilíu og hófst þar með könnun landsins.
- 8. maí - Fyrstu leiðbeiningar á eimun áfengis voru gefnar út: Liber de arte distillandi de simplicibus af Hieronymus Brunschwig.
- 29. maí - Pedro Cabral og föruneyti hans lentu í stormi við Góðrarvonarhöfða og misstu 13 skip. Meðal þeirra sem létust var Bartolomeu Dias.
- 9. ágúst - Önnur orrustan við Lepanto - Tyrkir sigruðu Feneyinga og lögðu Modon, Lepanto og Koron undir sig.
- 10. ágúst - Diogo Dias sá Madagaskar fyrstur Evrópubúa.
- 15. september - Kristófer Kólumbus var handtekinn ásamt bræðrum sínum tveimur af nýja landsstjóra Nýja heimsins Francisco de Bobadilla fyrir að taka Spánverja af lífi. Bræðurnir voru sendir til Spánar og var sleppt í desember að beiðni Ferdínands og Ísabellu konungshjóna.
- Svisslendingurinn Jacob Nufer framkvæmdi fyrsta keisaraskurð sögunnar er eiginkona hans gat ekki fætt barn þeirra. Hann bjargaði þar með lífi hennar og barnsins.
- Úlfar dóu út á Bretlandseyjum.
- Fædd
- 24. febrúar - Karl V, keisari hins heilaga rómverska ríkis (d. 1558).
- 1. nóvember - Benvenuto Cellini, ítalskur gullsmiður og myndhöggvari (d. 1571).
- Dáin
- 29. maí - Bartolomeu Dias, portúgalskur sæfari, sigldi fyrstur Evrópumanna fyrir Góðrarvonarhöfða.
