1498
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1498 (MCDXCVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Pétur Kláusson lét (líklega) af embætti hirðstjóra.
- Helgi Oddsson lögmaður lét af embætti.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 9. febrúar - Leonardo da Vinci lauk málverkinu Síðasta kvöldmáltíðin.
- 17. apríl - Loðvík 12. varð konungur Frakklands.
- 17. maí - Vasco da Gama kom til Kalíkút á Indlandi, fyrstur Evrópubúa til að sigla sjóleiðina til Indlands, suður fyrir Afríku.
- 30. maí - Kristófer Kólumbus hélt út í þriðju ferð sína þar sem hann kannaði meginland Suður-Ameríku í Nýja heiminum.
- 10. júní - Borgarastríði Fetkeapers og Skieringers lauk í Fríslandi, Hollandi, eftir aldalöng átök með sigri Skieringers.
- 20. júní - Niccolò Machiavelli var kjörinn annar kanslari lýðveldisins Flórens.
- 30. júní - Maximilian 1. stofnaði Wiener Hofmusikkapelle, forvera Vínardrengjakórsins.
- 5. ágúst - Barthólómeus Kólumbus, bróðir Kristófers Kólumbusar, stofnaði Santo Domingo (nú í Dóminíska lýðveldinu) og er borgin elsta varanlega aðsetur Evrópubúa í Vesturheimi.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Portúgalir sigldu upp með ströndum Tansaníu og Kenýa.
- John Cabot (Giovanni Caboto) sigldi úr höfn og ætlaði í nýjan leiðangur en sást aldrei framar.
- Portúgölsku landkönnuðurnir João Fernandes Lavrador og Pedro de Barcelos héldu til Grænlands en uppgötvuðu Labrador í leiðinni.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Soffía af Pommern, Danadrottning, kona Friðriks 1. (d. 1568).
- Hieronymus Bock, þýskur grasafræðingur (d. 1554).
- 15. nóvember - Elinóra af Austurríki, drottning Portúgals og síðar Frakklands (d. 1558).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 7. apríl - Karl 8. Frakkakonungur (f. 1470).
- 23. maí - Girolamo Savonarola, ítalskur munkur og umbótamaður í Flórens brenndur á báli, (f. 1452).
- 16. september - Tomás de Torquemada, leiðtogi spænska rannsóknarréttarins (f. um 1420).
