Anime

Anime (アニメ) eða japanskar teiknimyndir er sá flokkur teiknimynda sem framleiddur er í Japan og byggja á teiknistíl frá japönskum myndasögum sem kallast manga, þar sem flestar þeirra byggja á samnefndum manga sögum og fylgja þá yfirleitt teiknistíl höfundar.
Mikið af anime þáttaröðum og kvikmyndum eru framleiddar fyrir yngri kynslóðina en einnig eru framleitt blóðugra og grófara efni en það sem vestrænn hugsunarháttur á við að venjast. Þó má ekki misskilja það á þann hátt að allt anime sé gróft og blóðugt. Mikill hluti af þess eru rómantískar sögur og drama.
Efnisflokkar
[breyta | breyta frumkóða]Anime er flokkað eftir umfangsefni á saman hátt og manga, til að mynda er Shōnen fyrir pilta á unglingsárum og Shōjo fyrir stúlkur á svipuðum aldri, ecchi eða hentai er svo erótískt efni. Þetta er þó ekki tæmandi listi yfir hina ýmsu flokka af anime.
Kodomomuke
[breyta | breyta frumkóða]Kodomomuke eru krúttlegt anime sem er hugsað fyrir krakka, t.d. Pokémon og Digimon.
Shōnen
[breyta | breyta frumkóða]Shōnen er hugsað fyrir pilta á unglingsárum, þar sem efnið er fullt af spennu. t.d. Bleach, Naruto og Vampire Knight
Shōjo
[breyta | breyta frumkóða]Shōjo er hugsað fyrir unglingsstúlkur, þar sem söguþráðurinn er mikið um rómantík og tilfinningar.
Seinen
[breyta | breyta frumkóða]Seinin hefur þyngra eða blóðugra efni sem er hugsað fyrir fullorðið fólk og er ekki við hæfi barna. Sem dæmi má nefna Berserk eða Akira.
Josei
[breyta | breyta frumkóða]Josei er sá flokkur sem er hugsaður fyrir fullorðið fólk, þar sem söguþráðurinn er um raunverulegt líf, sambönd og dramatík.
Ecchi
[breyta | breyta frumkóða]Ecchi lýsir kynferðislegu gríni sem inniheldur ekki neitt klám.
Hentai
[breyta | breyta frumkóða]Gerðir af anime
[breyta | breyta frumkóða]Hægt er að flokka anime niður í þrjár megingerðir:
- Kvikmyndir — Bíómyndir eða sjónvarpsmyndir með samhangandi söguþræði. Þær eru yfirleitt betur fjármagnaðar og vandaðri en sjónvarpsþættir. Dæmi: Spirited Away, Princess Mononoke.
- OVA — (Original Video Animation) Stuttar þáttaraðir, oft 1-10 þættir með samhangandi söguþræði og eru oft framleiddar upp úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum. Dæmi: FLCL (Furi Kuri), Oh My Goddess! og Hellsing (OVA)
- Sjónvarpsþættir — Algengasta gerð anime. Hver þáttaröð telur fleiri þætti en OVA, yfirleitt fleiri en 24. Dæmi: Azumanga Daioh, Pokémon, Naruto og Hellsing (þættir).
Japönsk teiknimyndaver
[breyta | breyta frumkóða]Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Ytri tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Manga á Hugi.is Íslenskar umræður og greinar um japanskar teiknimyndir og myndasögur
