1509
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1509 (MDIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Vigfús Erlendsson lét af embætti hirðstjóra.
- Jón Sigmundsson varð lögmaður norðan lands og vestan.
- Halldór Ormsson lagði niður ábótastarf í Helgafellsklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Narfi Jónsson, ábóti í Þykkvabæjarklaustri og áður príor í Skriðuklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 3. febrúar - Sjóorrustan við Diu. Francisco de Almeida sigraði sameinaðan sjóher Egypta, araba og Indverja. Portúgalir urðu eftir þetta einráðir á vestanverðu Indlandshafi.
- 21. apríl - Hinrik 8. varð konungur Englands við lát föður síns Hinriks VII.
- 27. apríl - Júlíus II páfi setti Feneyjar í bann þar sem Feneyingar höfðu hafnað því að láta hluta Romagna-héraðs í hendur páfastóls.
- 14. maí - Ítalíustríðin - Frakkar unnu sigur á Feneyingum við Agnadello (milli Mílanó og Bergamo).
- 11. júní - Hinrik 8. Englandskonungur gekk að eiga Katrínu af Aragon, sem áður hafði verið gift Arthúr bróður hans.
- 17. júlí - Feneyingar náðu borginni Padúa af Frökkum. Frakkar hófu brátt umsátur um borgina í nokkra mánuði en náðu ekki að endurheimta hana.
- 10. september - Jarðskjálfti í Istanbúl. 109 moskur hrundu og talið er að 10.000 manns hafi farist.
- 27. september - Þúsundir létust í stormi í Hollandi.
- Erasmus frá Rotterdam samdi þekktasta verk sitt, Lof heimskunnar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 10. júlí - Jóhann Kalvín, guðfræðingur mótmælendahreyfingarinnar (d. 1564).
- Edward Seymour, hertogi af Somerset (d. 1552).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 21. apríl - Hinrik 7., konungur Englands (f. 1457).
- 29. júní - Lafði Margrét Beaufort, móðir Hinriks 7. Englandskonungs (f. 1443).
- 25. október - Jóhann 2. Portúgalskonungur (f. 1455).
