close
Fara í innihald

Terry Gilliam

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
BERJAYA
Terry Gilliam (2019)

Terry Gilliam (fæddur 22. nóvember 1940) er breskur kvikmyndaleikstjóri og meðlimur grínhópsins Monty Python. Hann varð fyrst þekktur fyrir stuttar hreyfimyndir sem hann teiknaði fyrir þættina Monty Python's Flying Circus en síðar sem leikstjóri. Myndir Gilliams eins og Brazil og Fear and Loathing in Las Vegas eru draumórakenndar og gerast á mörkum hins raunverulega og hins ímyndaða. Algeng stef í myndum hans eru átök rökhugsunar og hins andlega, átök draumóra og raunveruleikans og bilið á milli geðheilsu og geðveiki. Gilliam fæddist í Bandaríkjunum en hlaut breskan ríkisborgararétt árið 1968. Hann hafnaði bandarísku ríkisfangi sínu árið 2006.

BERJAYA  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.