close
Fara í innihald

Nintendo Switch 2

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
BERJAYA
Mynd af Nintendo Switch 2.
BERJAYA
Joy-Con 2-fjarstýringar.

Nintendo Switch 2 er leikjatölva frá japanska fyrirtækinu Nintendo[1] sem kom út á flestum mörkuðum 5. júní 2025.[2] Hægt er að nota hana sem smáleikjatölvu, eða nota hleðsludokku til að tengja hana við sjónvarp með HDMI-snúru. Eins og fyrri tölvan er hægt að nota hana þráðlaust og hún hefur líka fjölsnertiskjá. Tölvan hefur nýjar Joy-Con 2-fjarstýringar sem festast á hliðarnar með seglum og er líka hægt að nota aðskildar frá tölvunni. Hún hefur betri og stærri skjá, meira tölvuminni og geymslupláss og betri tölvugrafík, fjarstýringar og samnýtingarmöguleika miðað við fyrri útgáfu. Hún styður 1080p upplausn og 120Hz tíðni þegar hún er notuð sem smáleikjatölva, og 4K-upplausn með 60Hz tíðni þegar hún er tengd við sjónvarp. Auk þess styður hún HDR-merki.

Hægt er að kaupa leiki á áþreifanlegu formi (korti) eða í netverslun Nintendo (eShop). Sumir leikir koma aldrei út á korti og þarf að sækja með nettengingu. Í mars 2026 hafði Nintendo selt 19 milljón einingar um allan heim.[3] Nýjasti Mario Kart-leikurinn, Mario Kart World, var gefinn út á sama degi og seldur með tölvunni eða sér, og er mest seldi leikur tölvunnar með 14 milljón seldar einingar.[4]

Tilvísanir:

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Nintendo confirma sucessor do Switch; veja tudo que sabemos sobre“. Tecmundo. 7 maí 2024. Sótt 20. september 2024.
  2. „Nintendo Direct: Nintendo Switch 2 – 02.04.2025“. Nintendo of Europe SE.
  3. „Financial Results Explanatory Material“ (PDF). Nintendo. 8 maí 2026. Afrit (PDF) af uppruna á 8 maí 2026. Sótt 8 maí 2026.
  4. „IR Information : Sales Data - Top Selling Title Sales Units“. Nintendo Co., Ltd. (enska). Afrit af uppruna á 5 ágúst 2021. Sótt 3 febrúar 2026.