close
Fara í innihald

Tulsa

Tulsa
Tulsa, mynd tekin 2008
Tulsa, mynd tekin 2008
Tulsa er staðsett í Bandaríkjunum
Tulsa
Tulsa
Staðsetning í Bandaríkjunum
Hnit: 36°6′N 95°54′V / 36.100°N 95.900°V / 36.100; -95.900
LandBERJAYA Bandaríkin
FylkiBERJAYA Oklahoma
SýslaOsage, Rogers, Tulsa, Wagoner
Mannfjöldi
 (2020)[1]
  Samtals413.066
TímabeltiUTC−06:00 (CST)
  SumartímiUTC−05:00 (CDT)
Vefsíðahttps://www.cityoftulsa.org/

Tulsa (mvskokíska: Tallas; en. framb. /ˈtʌlsə/) er næststærsta borg Oklahómafylkis í Bandaríkjunum. Árið 2023 var áætlaður íbúafjöldi borgarinnar 411.894 en um 1.034.123 manns búa á stórborgarsvæðinu.[1] Borgin er sýsluhöfuðborg Tulsa-sýslu, sem er þéttbýlasta sýsla Oklahóma.[2]

Borgin var fyrst reist milli 1828 og 1836 af Mvskokeum og fékk bæjarréttindi árið 1898. Mest af borginni er enn á yfirráðasvæði Mvskokea. Norðvesturhlutinn liggur inni á verndarsvæði Osage-þjóðar en norðurhlutinn á verndarsvæði Cherokee-þjóðar.[3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „US Census – Tulsa, Oklahoma“. United States Census Bureau. Sótt 14. september 2025.
  2. „Tulsa County“. Oklahoma Historical Society. Sótt 31 júlí 2010.
  3. „U.S. Supreme Court deems half of Oklahoma a Native American reservation“. Reuters. 9 júlí 2020.
BERJAYA  Þessi Bandaríkja-tengda grein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.