close
Fara í innihald

Jeremy Lin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jeremy Lin
BERJAYA
Lin árið 2017
Persónulegar upplýsingar
Fæðingardagur23. ágúst 1988 (1988-08-23) (37 ára)
Torrance, Kalifornía, Bandaríkin
Þjóðerni
Hæð191 cm (6 ft 3 in)
Þyngd91 kg (201 lb)
Körfuboltaferill
HáskólaliðHarvard (2006–2010)
Ár í mfl.2010–2025
LeikstaðaBakvörður
Númer7, 17
Liðsferill
2010–2011Golden State Warriors
2010–2011Reno Bighorns
2011Dongguan Leopards
2011–2012New York Knicks
2012Erie BayHawks
2012–2014Houston Rockets
2014–2015Los Angeles Lakers
2015–2016Charlotte Hornets
2016–2018Brooklyn Nets
2018–2019Atlanta Hawks
2019Toronto Raptors
2019–2020Beijing Ducks
2021Santa Cruz Warriors
2021–2022Beijing Ducks
2022Guangzhou Loong Lions
2023Kaohsiung 17LIVE Steelers
2023–2025New Taipei Kings
Heildar tölfræði í NBA
Stig5.567 (11,6)
Fráköst1.338 (2,8)
Stoðsendingar2.042 (4,3)
Tölfræði á NBA.com Breyta á Wikidata
Tölfræði á Basketball Reference Breyta á Wikidata

Jeremy Shu-How Lin (fæddur 23. ágúst 1988) er bandarískur og tævanskur fyrrum körfuknattleiksmaður. Eftir að hafa hafið ferill sinn með Golden State Warriors þá skaust hann fram á sjónarsviðið í febrúar 2012 þegar hann fékk óvænt aukinn spilatíma hjá New York Knicks og hjálpaði liðinu að vinna sjö leiki í röð með frammistöðu sinni, sem fékk viðurnefnið Linsanity.

Lin lék síðar með Houston Rockets, Los Angeles Lakers, Charlotte Hornets, Brooklyn Nets, Atlanta Hawks og Toronto Raptors í NBA-deildinni, en með síðastnefnda liðinu vann hann NBA meistaratitilinn árið 2019.

Frá 2019 til 2025 lék hann að mestu í Kína og Tævan. Hann vann tvo meistaratitla í Tævan áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2025.[3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Liao Lu-wei, Jake Chung (20 ágúst 2020). „NBA star Lin gains ROC citizenship“. Taipei Times. Sótt 6 júní 2021.
  2. Matthew Strong (19 ágúst 2020). „Basketball star Jeremy Lin has obtained Taiwan passport“. Taiwan News. Sótt 6 júní 2021.
  3. „Lin retires after living 'wildest childhood dreams'. ESPN.com (enska). 31 ágúst 2025. Sótt 10 janúar 2026.